KR 3-2 FH
0-1 Jákup Thomsen (4′)
1-1 Tobias Thomsen (45′)
1-2 Jákup Thomsen (47′)
2-2 Tobias Thomsen (49′)
3-2 Tobias Thomsen (85′)
Lið KR er komið í úrslit Lengjubikarsins eftir sigur á FH í undanúrslitum mótsins í dag.
Það var Tobias Thomsen sem sá um að klára FH í Vesturbænum en hann gerði öll þrjú mörk KR-inga.
Jakup Thomsen kom FH tvívegis yfir í leiknum en í bæði skiptin svaraði Tobias fyrir KR og gerði svo sigurmarkið undir lokin.
KR mætir ÍA í úrslitum keppninnar og fer leikurinn fram eftir rúmlega viku.