Varnarmaðurinn ungi og efnilegi Aron Kári Aðalsteinsson hefur verið lánaður til nágranna okkar í HK.
Aron Kári verður tvítugur í sumar og hefur spilað 11 leiki með meistaraflokki Breiðabliks.
Síðasta sumar spilaði hann bæði með ÍR og Keflavík að láni og stóð sig mjög vel með báðum liðum.
Aron Kári á að baki 19 leiki með yngri landsliðum Íslands.
Hann stefnir á háskólanám í Bandaríkjunum í haust og mun því ekki klára tímabilið með HK.