Manchester United er samkvæmt erlendum miðlum að skoða þann möguleika að kaupa Toni Kroos, miðjumann Real Madrid í sumar.
Zinedine Zidane ætlar að taka til í herbúðum Real Madrid í sumar og gæti reynt að selja Kroos.
Kroos kom til Real Madrid árið 2014 eftir að Louis van Gaal neitaði að kaupa hann til United, allt var klárt en Van Gaal vildi ekki fá hann.
Veðbankar telja líklegt að Kroos fari til United og hefur stuðulinn á slíkt lækkað hressilega.
Real Madrid vill fara í miklar breytingar í sumar og gæti Zidane endað á að kaupa 5-6 leikmenn en einnig gæti hann losað sig við nokkra.