Það gæti verið að miðjumaðurinn Granit Xhaka sé á förum frá Arsenal áður en ferlinum lýkur.
Þetta segir miðjumaðurinn sjálfur en hann kom til Arsenal frá Borussia Monchengladbach árið 2016.
Síðan þá hefur gengið upp og niður hjá Xhaka en hann er 26 ára gamall og á nóg eftir af ferli sínum.
Hann gæti viljað spila fyrir stærra lið í framtíðinni ef marka má ummæli hans í gær.
,,Ég er mjög metnaðarfullur Ég vil taka næsta skrefið,“ sagði Xhaka við blaðamenn.
,,Það þarf ekki að vera að Arsenal sé síðasta stoppið á ferlinum.“