Hörður Snævar Jónsson skrifar frá París:
Íslenska landsliðið kom til Parísar í gærkvöldi og mun síðdegis í dag æfa á Stade de France í úthverfi Parísar. Liðið leikur sov við heimamenn í undankeppni EM á morgun.
Íslenska liðið, vann góðan sigur á Andorra á föstudag og kemur til Parísar, þar sem stig eða sigur væru algjör bónus.
Hvort íslenska liðið komist í lokakeppni EM, stendur hvorki né fellur með því hvað gerist á morgun. Íslenska liðið hefur þó hins vegar oftar en ekki átt sína bestu leiki á erfiðum útivöllum, nægir að nefna sigra í Hollandi og Tyrklandi.
Kingsley Coman, kantmaður FC Bayern og franska landsliðsins hefur þurft að draga sig úr hópnum fyrir leikinn á morgun.
Ástæðan eru meiðsli í baki en ekki verður kallaður inn varamaður fyrir Coman.