Ander Herrera, leikmaður Manchester United, er ekki sá vinsælasti hjá öðrum félögum á Englandi.
Herrera getur verið ansi grófur á velli og hikar ekki við að láta heyra í sér inni á milli.
Hann veit hvað öðrum stuðningsmönnum finnst um sig og hefur ekkert nema gaman að því.
,,Það myndi valda mér áhyggjum ef stuðningsmenn annarra liða myndu elska mig,“ sagði Herrera.
,,Ef þeir hata mig, þá er ég að gera góða hluti. Þegar kemur að fótbolta þá geri ég þeim ekki auðvelt fyrir.“
,,Svo lengi sem mínir eigin stuðningsmenn styðja við bakið á mér þá elska ég það.“