Argentína 1-3 Venesúela
0-1 Salomon Rondon
0-2 Jhon Murillo
1-2 Lautaro Martinez
1-3 Joseph Martinez
Það hefur gengið erfiðlega hjá landsliði Argentínu undanfarna mánuði en liðinu gekk illa á HM í Rússlandi.
Argentína mætti Venesúela í æfingaleik í gær og er Lionel Messi mættur aftur í landsliðið eftir pásu.
Messi ákvað að taka sér pásu eftir slakt gengi á HM í sumar en tók fram skóna á ný.
Stuðningsmenn Argentínu eru bálreiðir eftir frammistöðu liðsins í gær en liðið var fyrir leikinn talið mun sigurstranglegra.
Venesúela gerði sér hins vegar lítið fyrir og vann 3-1 sigur þar sem Lautaro Martinez gerði eina mark Argentínumanna.
Messi spilaði allan leikinn fyrir Argentínu en eins og oft áður var hann ekki upp á sitt besta í landsliðstreyjunni.