fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
433

Aukin þjónusta við íslenskt knattspyrnuáhugafólk: App sem breytir miklu

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 22. mars 2019 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Undirritaður hefur verið samstarfssamningur milli KSÍ, ÍTF og Pez ehf. um smíði og þróun apps með upplýsinga- og miðasölulausn sem hægt er að nýta fyrir leiki í efstu tveimur deildum karla og kvenna – Pepsi Max deildum og Inkasso-deildum. Appið snýr að leikjadagskrá liða, viðburðum, ýmsum öðrum upplýsingum og tilkynningum – sem og miðasölu á leiki, sölu ársmiða, birtingu á aðgönguskírteinum KSÍ og þess háttar.

Með appinu er leitast við að auka verulega þjónustu við áhugafólk um íslenska knattspyrnu, auka samskiptin milli félaganna og stuðningsmanna, og auðvelda og einfalda verulega miðakaup á leiki deildanna. Í markaðsrannsókn sem KSÍ lét vinna haustið 2018 kom m.a. vel í ljós að stór hluti áhugafólks um íslenska knattspyrnu hefði áhuga á að nota app til að fylgjast með og fá upplýsingar um leiki, auk þess að nota app eða aðra rafræna leið til að kaupa miða á leikina. Umrætt upplýsinga- og miðasöluapp er svar við þeirri niðurstöðu. Í appinu mun hver notandi geta sniðið viðmótið eftir sínu höfði og merkt það með litum og merki síns félags.

Appið sjálft, virkni þess og eiginleikar, verður kynnt nánar síðar, en áætlað er að það verði tilbúið til notkunar um miðjan apríl.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

United reynir að sannfæra Mainoo um að skrifa undir nýjan samning

United reynir að sannfæra Mainoo um að skrifa undir nýjan samning
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Sjáðu Pochettino lesa yfir blaðamönnum í gær – Þeir svöruðu honum fullum hálsi

Sjáðu Pochettino lesa yfir blaðamönnum í gær – Þeir svöruðu honum fullum hálsi
433Sport
Í gær

Ummæli í beinni útsendingu vekja athygli – „Rauðhærða pussa“

Ummæli í beinni útsendingu vekja athygli – „Rauðhærða pussa“
433Sport
Í gær

Urðar yfir Arteta og segir þetta stærstu mistök hans – „Það hefur komið í bakið á okkur“

Urðar yfir Arteta og segir þetta stærstu mistök hans – „Það hefur komið í bakið á okkur“