Það er ekkert leyndarmál að Manchester United mun reyna að fá til sín varnarmann í sumarglugganum.
Vörn liðsins þykir ekki vera nógu sterk og gæti félagið pungað út hárri upphæð til að fá miðvörð.
Kalidou Koulibaly er orðaður við félagið en hann leikur með Napoli og þykir einn öflugasti hafsent heims.
Koulibaly er einnig landsliðsmaður Senegal og spilar þar ásamt Sadio Mane, leikmanni Liverpool.
Stuðningsmenn Senegals mættu með borða á æfingu Senegals í gær þar sem mátti sjá mynd af varnarmanninum í treyju United.
Hópur stuðningsmanna vilja sjá Koulibaly færa sig yfir til Englands en á borðanum stóð: ,,Komdu til United“
Mane sá þennan borða en var ekki of hrifinn eins og má sjá hér fyrir neðan. Eins og flestir vita er mikill rígur á milli United og Liverpool.