Manchester United á Englandi hefur gefið varnarmanninum Marcos Rojo leyfi til að ferðast til Argentínu.
Rojo fagnaði 29 ára afmæli sínu í dag en hann fær afar lítið að spila á Old Trafford þessa dagana.
Rojo mun líklega yfirgefa lið United í sumar en hann virðist ekki vera í plönum Ole Gunnar Solskjær.
Hann fékk grænt ljóst á að ferðast til heimalandsins og æfa með sínu fyrrum félagi estudiantes.
Estudiantes birti myndir af Rojo á æfingu í dag en hann hefur ekki spilað leik fyrir United síðan í desember gegn Valencia.
Rojo fær 80 þúsund pund í vikulaun hjá United og vill félagið losna við hann af launaskrá í sumar.