Eden Hazard, leikmaður Chelsea, er ekki að vinna í því að komast til Real Madrid þessa stundina.
Hann greinir sjálfur frá þessu í dag en Belginn er sterklega orðaður við spænska stórliðið.
Hazard mun leika með belgíska landsliðinu í vikunni en mun svo sjá til hvað hann gerir eftir það.
,,Ég er ekki að vinna í því að komast til Real Madrid þessa stundina,“ sagði Hazard við blaðamenn.
,,Ég hef viljað standa mig með Chelsea í nokkra mánuði og við viljum vinna Evrópudeildina.“
,,Ég hugsa um landsliðið í þessari viku og svo fer ég aftur til Chelsea. Svo sjáum við hvað gerist.“