Framherjinn Viðar Örn Kjartansson er enginn í raðir Hammarby í Svíþjóð en þetta var staðfest í dag.
Viðar hefur undanfarna mánuði spilað með Rostov í Rússlandi þar sem hlutirnir hafa ekki gengið upp.
Tækifærin hafa verið af skornum skammti í rússnensku deildinnu og fær Viðar nú líflínu annars staðar.
Hammarby leikur í efstu deild í Svíþjóð og gerir Viðar lánssamning við félagið þar til í sumar.
Sænska deildin hefst í apríl næstkomandi og spilar Hammarby þá gegn Elfsborg.
Viðar þekkir það að spila í Svíþjóð en hann lék með Malmö við góðan orðstír árið 2016.