Lionel Messi skoraði þrennu fyrir lið Barcelona í gær er liðið mætti Real Betis í spænsku úrvalsdeildinni.
Messi skoraði tvö stórkostleg mörk í 4-1 sigri Barcelona, eitt úr aukaspyrnu og eitt með frábærri vippu innan teigs.
Eftir leik þá klöppuðu stuðningsmenn Betis fyrir Messi, eitthvað sem Ernesto Valverde, stjóri Barcelona, skilur vel.
,,Leo átti ótrúlegan leik. Hann skoraði þrjú mörk og þau hefðu getað verið fjögur,“ sagði Valverde.
,,Þetta er sönnun um hvernig leikmaður hann er. Þrátt fyrir að þeir hafi þurft að taka þessu þá nutum við þess að vera uppi á hans tíma, það er ekkert sem jafnast á við þetta.“
,,Það er risastórt að þeir skuli klappa fyrir honum. Þeir skilja hversu góður hann er.„