Anthony Martial, leikmaður Manchester United, mun ekki spila með franska landsliðinu gegn Íslandi þann 25. mars.
Þetta var staðfest nú rétt í þessu en Martial er að glíma við meiðsli og getur ekki tekið þátt.
Hann var upphaflega valinn í leikmannahópinn en meiddist í 2-1 tapi United gegn Wolves í gær.
Martial var nýkominn til baka eftir meiðsli en hann hafði verið frá í mánuð vegna þess.
Nú er sóknarmaðurinn að glíma við hnémeiðsli og verður ekki klár fyrir leikinn í undankeppni EM.
Thomas Lemar fær sæti Martial í hópnum en ekki er víst hversu lengi hann verður frá vegna meiðslanna.