Það var Íslendingaslagur á dagskrá í færeyskú úrvalsdeildinni í dag er lið HB og NSÍ Runavík áttust við.
Tveir íslenskir þjálfarar eru þar við stjórnvölin en Guðjón Þórðarson þjálfar Runavík og Heimir Guðjónsson þjálfar HB.
Heiðursjafntefli varð niðurstaðan á heimavelli HB í dag en leiknum lauk með 1-1 jafntefli.
HB lenti undir snemma leiks en svaraði fyrir sig í síðari hálfleik og skildu liðin jöfn.
Þetta var annað jafntefli HB í röð í fyrstu tveimur umferðunum en Runavík vann sinn fyrsta leik 1-0.