Pep Guardiola, stjóri Manchester City, vonar að Bayern Munchen slái Liverpool úr keppni í Meistaradeildinni í kvöld.
Liðin eigast við á Allianz Arena í kvöld en fyrri leik liðanna lauk með markalausu jafntefli á Anfield.
City berst við Liverpool um enska meistaratitilinn og gæti það hjálpað liðinu ef Liverpool kemst áfram vegna leikjaálags.
Guardiola stendur þó með Bayern en hann þjálfaði liðið í þrjú ár áður en hann hélt til Englands.
,,Ég bið enska fólkið afsökunar en ég vil að Bayern fari áfram í keppninni,“ sagði Guardiola.
,,Ég er hluti af þessu félagi, ég eyddi þremur ótrúlegum árum þarna. Ég elska Munich og á marga vini þar.“
,,Þetta verður erfiður leikur fyrir bæði lið en ég held með Bayern og vonandi geta þeir farið áfram.“