Juventus þarf á stórleik að halda í kvöld er liðið mætir Atletico Madrid í Meistaradeild Evrópu.
Seinni leikur liðanna fer fram í kvöld en Atletico vann fyrri leikinn öruggleg 2-0 á Spáni.
Það er því allt undir í kvöld. Hér má sjá byrjunarliðin á Ítalíu.
Juventus: Szczesny; Cancelo, Bonucci, Chiellini, Spinazzola; Emre Can, Pjanic, Matuidi; Bernardeschi, Mandzukic; Cristiano Ronaldo.
Atletico Madrid: Oblak; Arias, Giménez, Godín, Juanfran; Sául, Koke, Rodri, Lemar; Griezmann, Morata.