Breiðablik 2-0 Víkingur R.
1-0 Thomas Mikkelsen(22′)
2-0 Aron Bjarnason(90′)
Breiðablik vann sinn annan sigur í Lengjubikar karla í dag er liðið mætti Víkingi Reykjavík í Fífunni.
Um var að ræða aðra umferð riðlakeppninnar en Blikar höfðu unnið Gróttu 3-0 í fyrstu umferð. Víkingur tapaði á meðan 3-2 fyrir FH.
Þeir Thomas Mikkelsen og Aron Bjarnason sáu um að tryggja Blikum sigur í dag með mörkum í bæði fyrri og seinni hálfleik.
Blikar fara á topp riðilsins með sigrinum og eru með sex stig. Víkingar eru án stiga.