Það má búast við miklu fjöri á Spáni í kvöld er lið Atletico Madrid fær Juventus í heimsókn.
16-liða úrslit Meistaradeildarinnar halda áfram og snýr Cristiano Ronaldo aftur til Spánar í kvöld og leikur með Juve í Madrid.
Hér má sjá byrjunarlið kvöldsins.
Atletico Madrid: Oblak, Juanfran, Gimenez, Godin, Luis, Thomas, Koke, Rodri, Saul, Griezmann, Costa.
Juventus: Szczesny, De Sciglio, Chiellini, Bonucci, Sandro, Pjanic, Matuidi, Bentancur, Dybala, Mandzukic, Ronaldo.