Anthony Martial, sóknarmaður Manchester United virðist eiga erfitt með að vera trúr v kærustu sinni. Melanie Da Cruz.
Erlendir fjölmiðlar hafa reglulega fjallað um Martial og vandræði hans í ástarlífinu, nú er því haldið fram að hann hafi síðasta sumar haldið framjhá Melanie, sem var þá ófrísk af syni þeirra.
Martial er sagður hafa átt heita nótt með fyrirsætunni, Malika Semichi sem er tvítug. Atvikið á að hafa átt sér stað á tveggja stjörnu hóteli í París í sumar.
Tveimur vikum síðar átti Melanie, son þeirra Swan sem er annað barn Martial. Melanie kom nefnilega inn í líf Martial þegar hann var með annari konu, með henni á hann dóttur.
Þá hefur Martial verið gómaður við að senda myndir af sér tl annara kvenna í gegnum, Snapchat.
Martial var einnig á forsíðum blaðanna í gær en þá fyrir að hafa skorað glæsilegt mark í 3-0 sigri United á Fulham.
Martial fékk nýja fimm og hálfs árs samning við United á dögunum og þénar nú um 30 milljónir á viku.