Ole Gunnar Solskjær leyfði leikmönnum Manchester United að skemmta sér hressilega í gær í Dubai.
Solskjær fór með alla leikmenn og starfsmenn út að borða og út á lífið.
Leikmenn United voru þó ekki að djamma fram eftir morgni en leikmenn máttu skemmta sér hóflega.
Farið var út að borða og á skemmtistað þar sem ungur leikmaður, Angel Gomes tók lagið.
Létt virðist yfir leikmönnum United eftir að Jose Mourinho var rekinn en Solskjær hefur unnið fimm fyrstu leikina í starfi.
Fyrsta stóra prófið hans er á sunnudag er liðið heimsækir Tottenham.