David Luiz, leikmaður Arsenal, fékk dæmt á sig víti í dag er liðið spilaði við Liverpool á Anfield.
Luiz togaði í treyju Mo Salah í seinni hálfleik en sá síðarnefndi fór ekki í grasið og náði boltanum.
Þrátt fyrir það ákvað dómari leiksins að dæma víti á Luiz sem hefur nú tjáð sig um atvikið.
,,Ef þú spilar í stærri treyjum í dag þá gæti verið dæmt víti á allt,“ sagði Luiz við Sky Sports.
,,Þetta voru bara viðbrögð. Mo er vinur minn og hann sagðist ekki hafa fundið fyrir þessu.“