Margir leikmenn Manchester United hika við það að skrifa undir nýjan samning við félagið þessa stundina.
Frá þessu greina enskir miðlar en það er vegna klásúlu sem United heimtar að setja í samning leikmannana.
Klásúlan virkar þannig að ef United mistekst að komast í Meistaradeildina þá lækka laun leikmanna um 25 prósent.
Einhverjir leikmenn þurftu að taka á sig 25 prósent launahækkun fyrir þessa leiktíð því United er nú í Evrópudeildinni.
Það er talið vera ástæðan fyrir því að David de Gea sé ekki búinn að skrifa undir nýjan samning á Old Trafford.
Klásúlan hefur lengi verið hefð hjá félaginu og er ekki mikill áhugi fyrir því að losa hana núna.