Elías Rafn Ólafsson markvörður FC Midtjylland hefur verið lánaður til Aarhus Fremad.
Midtjylland vill að hinn efnilegi tveggja metra markvörður fái reynslu með aðalliði.
Elías er 19 ára gamall en hann kom til Midtjylland frá Breiðablik.
Aarhus Fremad leikur í annari deildinni í Danmörku en Elías var hetja unglingaliðs Midtjylland gegn Manchester United á síðustu leiktíð.