Stjarnan 3-1 ÍA
1-0 Sölvi Snær Guðbjargarson (25′)
1-1 Aron Kristófer Lárusson (45′)
2-1 Þorsteinn Már Ragnarsson (46′)
3-1 Baldur Sigurðsson (71′)
Stjarnan lyfti sér upp í fjórða sæti Pepsi Max-deildar karla í kvöld er liðið mætti ÍA.
Það hefur ekkert gengið hjá ÍA í undanförnum leikjum og var liðið að tapa fjórða leik sínum í röð.
Stjarnan hafði betur 3-1 á heimavelli og er nú tveimur stigum á eftir Breiðablik sem er í öðru sæti.
ÍA er með 22 stig í sjöunda sæti deildarinnar, fjórum stigum frá fallsæti.