Ivan Perisic hefur gert lánssamning við þýska stórliðið Bayern Munchen og kemur frá InteR Milan.
Þessi skipti voru ekki lengi að ganga í gegn en um leið og Bayern sýndi Perisic áhuga þá vildi hann fara.
,,Þetta gerðist mjög fljótt. Það þekkja allir það sem gerðist með Leroy Sane,“ sagði Perisic.
,,Ég vona að hann nái sér fljótt en þegar þeir hringdu í mig þá tók það mig nokkra klukkutíma að taka ákvörðun með fjölskyldunni.“
,,Þegar lið eins og Bayern hringir í þig þá geturðu ekki sagt nei.“