Það er útlit fyrir það að miðjumaðurinn Donny van de Beek sé ekki á förum frá Ajax í Hollandi.
Frá þessu greinir stjóri Ajax, Erik ten Hag en Van de Beek var talinn vera á leið til Real Madrid.
Það hefur lítið heyrst af þeim félagaskiptum undanfarið og telur Ten Hag að Van de Beek sé ekki á förum.
,,Van de Beek hugsar bara m að spila. Ég býst við því og vona að hann verði með okkur áfram,“ sagði Ten Hag.
,,Ef ekki þá mun ég heyra frá Marc Overmars [yfirmanni knattspyrnumála félagsins].“