Wesley Sneijder, fyrrum stjarna Inter Milan og Real Madrid, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna.
Þetta staðfesti Sneijder í dag en hann hefur undanfarið ár leikið með Al-Gharafa í Katar.
Þar var Sneijder heitur fyrir framan markið en hann gerði alls 15 mörk í 22 leikjum fyrir liðið.
Sneijder er hollensk goðsögn en hann lék 134 leiki fyrir þjóð sína og skoraði 31 mark.
Hann spilaði með Ajax, Real, Inter, Galatasaray, Nice og nú Al-Gharafa á farsælum ferli.