Jose Mourinho, fyrrum stjóri Chelsea, varar Arsenal við því að Nicolas Pepe gæti lent í vandræðum á Englandi.
Pepe er dýrasti leikmaður í sögu Arsenal en hann kom frá Lille í sumar.
Mourinho þekkir það vel að þjálfa leikmenn á Englandi og segir að það taki oft tíma fyrir þá til að aðlagast.
,,Ég fylgist mikið með Lille, á síðustu leiktíð eftir að ég var rekinn þá vildi ég ekki eyða of miklum tíma á enskum völlum,“ sagði Mourinho.
,,Ég fór til Lille og fylgdist með Pepe og ég tel að hann sé mjög hæfileikaríkur leikmaður.“
,,En á Englandi þá er alltaf spurningamerki um leikmenn og tímann sem þeir þurfa til að aðlagast.“
,,Hann er strákur með mikil gæði og gæti reynst Arsenal vel.“