Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur staðfest það að Alisson Becker verði frá í dágóðan tíma.
Markvörðurinn meiddist á föstudaginn er Liverpool spilaði við Norwich í ensku úrvalsdeildinni.
Brassinn er að glíma við kálfameiðsli en fyrst var greint frá því að hann yrði frá í allt að sex vikur.
Klopp hefur nú staðfest það að Alisson verði frá í nokkrar vikur og líklega í einn mánuð.
Það þýðir að Spánverjinn Adrian mun verja mark Liverpool í næstu leikjum.