Rodri, nýr leikmaður Manchester City, segist vera nógu stór og sterkur fyrir ensku úrvalsdeildina.
Rodri kemur til City frá Atletico Madrid en hann lék með liðinu í aðeins eitt ár eftir að hafa komið frá Villarreal.
Rodri spilaði með Atletico sem unglingur frá 2007 til 2013 og var svo hjá Villarreal frá 2013 til 2018.
,,Það sem er satt er að ég þroskaðist seint. Ég var ekki eins og liðsfélagarnir mínir,“ sagði Rodri.
,,Ég var á sama stað um ári eða tveimur árum seinna, ég var ekki nógu stór og sterkur þegar ég var 16 eða 17 ára en færði mig um set af annarri ástæðu.“
,,Ég er ánægður með þá ákvörðun því ég væri ekki hér ef ég hefði ekki samið við Villarreal.“
,,Fótboltinn er að breytast. Það er reynt á meira líkamlega í ensku úrvalsdeildinni. Það er gott að ég sé með þá líkamsbyggingu sem ég er með.“