Sadio Mane, leikmaður Liverpool, mun ekki spila með liðinu í fyrsta leik tímabilsins þann 4. ágúst.
Þetta staðfesti Jurgen Klopp, stjóri Liverpool í gær en Mane er í sumarfríi þessa stundina.
Mane spilaði mikið með Liverpool í vetur og tók svo þátt í Afríkukeppninni með landsliði Senegal í sumar.
Liverpool spilar við Manchester City í leiknum um Samfélagsskjöldinn þann 4. ágúst og verður Mane ekki með.
Klopp staðfesti það að Mane myndi snúa aftur til æfinga þann 5. ágúst og hefur þá viku til að undirbúa sig fyrir byrjun ensku úrvalsdeildarinnar.