Chelsea á Englandi hefur ákveðið að lána miðjumanninn Ethan Ampadu til Þýskalands.
Þetta var staðfest í dag en Ampadu er 18 ára gamall og hefur gert samning við RB Leipzig.
Ampadu spilaði sinn fyrsta leik fyrir Chelsea árið 2016 og hefur síðan þá komið við sögu í 12 leikjum.
Hann gerði nýjan fimm ára samning í september í fyrra en Ampadu er talinn mikilvægur leikmaður fyrir framtíðina.
Leipzig er einn besta lið Þýskalands í dag en liðið hefur barist um efstu sætin síðustu tvö tímabil.