Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, var spurður út í miðjumanninn Paul Pogba á blaðamannafundi í gær.
Pogba er orðaður við Real þessa dagana en hann vill komast burt frá stórliði Manchester United.
Juventus og Real eru þau lið sem hafa áhuga á Pogba sem myndi kosta allt að 150 milljónir punda.
,,Við þurfum að virða alla en það eina sem ég get sagt er að við vitum hvað við viljum gera,“ sagði Zidane.
,,Það gæti eitthvað gerst fyrir lok ágúst. Við gætum séð einhverjar breytingar.“