Arsenal á Englandi er að kaupa sóknarmanninn Everton Soares en frá þessu greina fjölmargir miðlar.
Þessi 23 ára gamli leikmaður var ein af stjörnum brasilíska landsliðsins á Copa America mótinu í sumar.
Brasilía vann mótið með Everton í liðinu en hann getur bæði spilað sem sóknarmaður og á vængnum.
Hann reynist mun ódýrari kostur en Wilfried Zaha en Arsenal hefur reynt að fá hann í allt sumar.
Crystal Palace vill þó fá 80 milljónir punda fyrir Zaha á meðan Everton kostar 36 milljónir frá Gremio.
Everton hefur einnig sýnt Everton áhuga en útlit er fyrir að Arsenal hafi unnið kapphlaupið.