Jean Michel Seri hefur skrifað undir samning við tyrknenska félagið Galatasaray.
Seri er 28 ára gamall miðjumaður en hann lék með Fulham á síðustu leiktíð.
Þar stóð Seri alls ekki undir væntingum en Fulham féll úr ensku úrvalsdeildinni nokkuð sannfærandi.
Seri kom til Fulham á síðasta ári en hann gerði garðinn frægan með Rennes í Frakklandi.
Galatasaray er eitt stærsta lið Tyrklands og tókst að fá Seri til sín á lánssamningi út næstu leiktíð.