Miðvörðurinn Gilson Correia hefur yfirgefið lið ÍBV í Pepsi Max-deild karla.
Þetta kemur fram á Fótbolti.net í morgun en Gilson hefur alls ekki staðist væntingar í Vestmannaeyjum.
Um er að ræða 22 ára gamlan varnarmann sem kom til ÍBV fyrir tímabilið í sumar.
ÍBV samdi við Oran Jackson í gær en hann kemur til félagsins eftir dvöl á Englandi.
ÍBV hefur reynt að losna við Gilson síðustu daga og vikur og er hann nú loks frjáls ferða sinna.