Kristján Flóki Finnbogason hefur gert samning við KR í Pepsi Max-deild karla.
Þetta var staðfest í dag en eins og við greindum frá fyrr í mánuðinum valdi Kristján lið KR fram yfir lið FH.
FH reyndi mikið að fá Kristján í sínar raðir í sumar en hann ákvað að lokum að velja lið KR sem er á toppnum.
Kristján er 24 ára gamall sóknarmaður og hefur undanfarin tvö ár spilað með Start í Noregi.
Tækifærin voru þó af skornum skammti og gerði Kristján samning við KR til ársins 2023.