Real Madrid á Spáni borgaði 40 milljónir punda fyrir Rodrygo í sumar en hann er Brasilíumaður.
Rodrygi er 18 ára gamall sóknarmaður en hann kom til Real frá brasilíska liðinu Santos.
Það er hins vegar útlit fyrir það að Rodrygo geti ekki spilað með aðallinu strax samkvæmt spænskum miðlum.
Ástæðan er sú að Real er með of marga útlendinga skráða eða leikmenn sem koma ekki frá Evrópu.
Rodrygo þarf því að svo stöddu að spila með unglingaliði Real en félagið reynir að græja evrópskt vegabréf fyrir hann.
Samkvæmt Marca gæti Rodrygo orðið löglegur í september en getur eins og staðan er ekki leikið keppnisleiki með aðalliðinu.