Dani Alves, fyrrum leikmaður Barcelona, er tilbúinn að taka á sig launalækkun til að semja við Arsenal.
Frá þessu greina enskir miðlar í kvöld en Alves er án félags og getur samið frítt við Arsenal.
Arsenal er að skoða það að fá Alves sem var síðast á mála hjá Paris Saint-Germain í Frakklandi.
Hann er 36 ára gamall í dag og hefur unnið 40 titla á ferlinum, eitthvað sem enginn annar hefur afrekað.
Alveg vill þó fá 200 þúsund pund á viku í London en það eru lægri laun en hann var á í Frakklandi.