Brendan Rodgers, stjóri Leicester City, staðfesti það í kvöld að félagið væri búið að hafna tveimur tilboðum í Harry Maguire.
Maguire er afar eftirsóttur varnarmaður en hann er á óskalista Manchester United sem vill fá hann í sumar.
Rodgers stýrði Leicester gegn Scunthorpe í kvöld í æfingaleik og ræddi við blaðamenn eftir leik.
Þar staðfesti Rodgers að Leicester væri búið að hafna tveimur tilboðum í Maguire frá United.
Leicester vill fá 90 milljónir punda fyrir Maguire en United hefur ekki boðið svo hátt í leikmanninn.