David Luiz, leikmaður Chelsea, er ánægður með komu Frank Lampard til félagsins á ný.
Lampard er nýr stjóri Chelsea en hann er goðsögn hjá félaginu og sá markahæsti í sögu liðsins.
Luiz lék með Lampard hjá Chelsea en þarf nú að hlusta á skipanir fyrrum liðsfélaga síns.
,,Hann er leiðtogi liðsins, alveg eins og hann var þegar hann spilaði hérna. Þetta er öðruvísi hlutverk,“ sagði Luiz.
,,Hann getur ekki hlaupið lengur eða skorað mörk en hann er leiðtogi svo það verður auðvelt að skilja það sem hann vill.“
,,Það er frábært að fá hann aftur en ekki bara hann heldur allt starfsfólkið sem hefur þekkt félagið í langan tíma. Þau elska félagið og biðu eftir þessu tækifæri.“