HK 2-1 KA
1-0 Björn Berg Bryde(33′)
1-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson(víti, 43′)
2-1 Valgeir Valgeirsson(84′)
HK lyfti sér upp í áttunda sæti Pepsi Max-deildar karla í dag er liðið mætti KA.
HK hefur verið í stuði undanfarið og vann 2-1 sigur á KA og þar með sinn þriðja sigur í fjórum leikjum.
Nýliðarnir eru með 14 stig í áttunda sætinu en KA er í 10. sæti aðeins einu stigi frá fallsæti.
Tveir leikmenn fengu rautt í dag en Bjarni Gunnarsson var rekinn af velli hjá HK og Steinþór Freyr Þorsteinsson hjá KA.