Framherjinn Callum Wilson hefur framlengt samning sinn við Bournemouth en þetta var staðfest í dag.
Um er að ræða 27 ára gamlan framherja en Wilson er einn allra mikilvægasti leikmaður liðsins.
Hann skoraði 14 mörk á síðustu leiktíð og var sterklega orðaður við önnur félög í janúarglugganum.
Bournemouth tókst þó að sannfæra Wilson sem skrifaði undir til ársins 2023.