Inter Milan hefur fundað með framherjanum Romelu Lukaku en þetta staðfesti ítalska félagið í dag.
Pieru Ausilio, stjórnarformaður Inter, staðfesti það að það væri búið að funda vegna leikmannsins.
Lukaku vill mikið komast í Serie og vill vinna með stjóranum Antonio Conte sem tók við Inter í sumar.
,,Við funduðum með Manchester United vegna Lukaku. Þetta var á milli félagana og við sjáum hvað gerist,“ sagði Ausilio.
,,Allir þeir leikmenn sem við skoðum eru á óskalista Antonio Conte. Við viljum verða að hans ósk fjárhagslega.“