Barcelona á Spáni hefur fest kaup á ungstirninu Louie Barry en þetta var staðfest í dag.
Barry er 16 ára gamall leikmaður en hann kemur til spænska stórliðsins frá West Bromwich Albion.
Nokkur lið sýndu Barry áhuga í sumar og var Paris Saint-Germain með augastað á stráknum.
Barcelona tókst hins vegar að tryggja sér leikmanninn sem gerði þriggja ára samning á Nou Camp.
Barry var á mála hjá West Brom í tíu ár og spilaði sinn fyrsta aðalliðsleik á síðustu leiktíð.