Dómarinn Roddy Zambrano hefur svarað gagnrýni Lionel Messi sem hann lét falla á dögunum.
Zambrano dæmdi leik Argentínu og Brasilíu á Copa America og var Messi bálreiður eftir frammistöðu hans.
Messi vildi meina að Zambrano væri á móti argentínska liðinu en dómarinn tekur þau ummæli ekki í mál.
,,Messi er mjög áræðinn leikmaður og ég hef aldrei lent í vandræðum með hann,“ sagði Zambrano.
,,Sannleikurinn er sá að þessi ummæli komu mér á óvart en allir eiga rétt á sinni skoðun.“
,,Þegar leikmenn Argentínu sögðu að ég væri stressaður þá áttu þeir við að ég væri pirraður því ég tek mig mjög alvarlega sem dómara.“