Manchester United hefur óvænt áhuga á miðjumanninum Tiemoue Bakayoko sem spilar með Chelsea.
Franski miðillinn RMC greinir frá þessu en Bakayoko ku hafa áhuga á því að yfirgefa Chelsea í sumar.
Þessi 24 ára gamli leikmaður stóðst ekki væntingar hjá Chelsea áður en hann var lánaður til AC Milan.
Þar stóð Bakayoko sig með prýði á síðustu leiktíð en félagið ætlar þó ekki að kaupa hann endanlega.
Einnig er sagt að Paris Saint-Germain hafi áhuga á Bakayoko sem var áður á mála hjá Monaco.