Alberto Moreno, leikmaður Liverpool, er búinn að finna sér nýtt félag samkvæmt fregnum dagsins.
Moreno er 26 ára gamall bakvörður en hann varð samningslaus í sumar eftir fimm ára dvöl á Anfield.
Moreno kom til Liverpool frá Sevilla árið 2014 og spilaði alls 90 deildarleiki fyrir félagið.
Moreno er að gera fimm ára samning við Villarreal en liðið leikur í efstu deild á Spáni.
Spánverjinn lék áður með Sevilla við góðan orðstír og á að baki fjóra landsleiki fyrir Spán.