ÍA 2-0 Fylkir
1-0 Tryggvi Hrafn Haraldsson(13′)
2-0 Viktor Jónsson(80′)
Lið ÍA svaraði vel fyrir sig í Pepsi Max-deild karla í dag er liðið mætti Fylki á heimavelli.
ÍA var án sigurs í síðustu fjórum leikjum sínum en liðið vann 2-0 heimasigur í dag og komst í annað sæti deildarinnar.
Skagamenn eru sex stigum frá toppliði KR og tveimur stigum frá Breiðablik sem er sæti ofar.
Þeir Tryggvi Hrafn Haraldsson og Viktor Jónsson gerðu mörk ÍA í sigrinum á Akranesvelli.